Enn kvarnast úr vopnabúrinu

Allt virðist ganga ríkisstjórnum Íslands, Bretlands, Hollands og öðrum stuðningsmönnum Icesave-ánauðarinnar í mót þessa dagana. 

Enn kvarnast úr vopnabúri stuðningsmanna þess að lögin verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Sú hótun að ekki sé hægt að lækka stýrivexti á meðan Icesave málið er "óklárað,, er út af borðinu miðað við þessi ummæli seðlabankastjóra.  Verst er að seðlabankastjórinn fær sennilega á baukinn vegna þessa óheppilega útspils. 

Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa verið óþreytandi við að benda mönnum á að það sé ekki þeirra að tjá sig um tiltekin mál, eins og t.d. þegar aðstoðarmaður forsætisráðherra benti Evu Joly á að halda sig við sitt en vera ekki að vasast í Icesave málinu.  Aðrir eru iðulega sagðir misskilja mál sem eingöngu hörðustu stuðningsmenn ánauðarinnar virðast geta skilið.

 


mbl.is Icesave-mál þarf ekki að hindra vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband