Fátt einkennir núverandi ráðamenn landsins meira en ofstækið sem þeir missa reglulega í dagsljósið. Allt frá fyrsta degi, þegar þeir náðu óvænt völdum í kjölfar skipulagðra óeirða, hefur heiftin verið þeirra helsta eldsneyti. Í upphafi valdatíðarinnar komst þannig ekkert annað að hjá núverandi stjórnarflokkum en að flæma gamlan pólitískan andstæðing úr starfi, af fádæma persónulegri heift. Var þar sleginn tónn sem síðan hefur verið unnið eftir. Nýjasta dæmið er sefasýkin sem upp er komin á vinstribænum yfir ráðningu nýs forstjóra bankasýslu ríkisins. Vinstrimenn froðufella hreinlega yfir ráðningunni, en þó hefur ekki annað komið fram en hún sé nákvæmlega eftir lögum og reglum.
Og hverjar eru reglurnar?
Bankasýslan var stofnuð með sérstökum lögum árið 2009. Það var nú sjálfur Steingrímur J. Sigfússon sem flutti frumvarpið til þeirra laga, svo varla verður það betur gert. Bankasýslunni er ætlað að fara með eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum og samkvæmt lögunum þá skal sérstök þriggja manna stjórn fara með yfirstjórn stofnunarinnar og er tekið fram í lögunum að hún skuli ráða forstjóra bankasýslunnar. Við umræður á alþingi sagði Steingrímur J. Sigfússon að með þessu væru menn „akkúrat að færa málin af hinu pólitíska borði, út úr ráðuneytinu og búa til armslengd á milli stjórnmálanna, framkvæmdarvaldsins og löggjafans þess vegna, og þeirrar framkvæmdar sem þarna á að fara fram“. Í greinargerð með lögunum segir svo, að sú skipan, að stjórnin en ekki stjórnmálamennirnir ráði forstjórann, sé meðal annars gerð „til þess að tryggja sjálfstæði stofnunarinnar gagnvart ráðuneytinu og til að undirstrika faglegt hlutverk hennar sem umsýsluaðila eignarhluta ríkissjóðs í fjármálafyrirtækjum.” Þegar lögin höfðu verið samþykkt skipaði svo Steingrímur J. Sigfússon sjálfur alla stjórnarmennina, svo varla verður það betur gert.
Ráðningin er lögum samkvæmt
Nú hefur stjórn bankasýslunnar gert það sem lög bjóða. Hún hefur ráðið forstjóra. Hún mun hafa lagt ýmis próf fyrir umsækjendur og leitað ráðgjafa sérfræðinga og að því loknu var það niðurstaða stjórnarinnar að Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi væri hæfasti umsækjandinn. Engar forsendur hef ég til að dæma umsækjendur, en svar stjórnar bankasýslunnar við kröfu fjármálaráðherra um rökstuðning vegna ráðningarinnar  er að því er virðist býsna vel ígrundað og rökstutt. Hitt blasir við, og er meginatriði málsins, að sá aðili, sem lögum samkvæmt á að taka endanlega ákvörðun, tók endanlega ákvörðun, byggða á því sem sá aðili taldi réttast. Og það er einmitt hin rétta leið.
Vinstrimenn froðufella
Þegar stjórn bankasýslunnar sinnti lagaskyldu sinni þá hefur hún líklega gleymt því að við völd eru ofstækisfullir vinstrimenn. Og þeir geta aldrei metið pólitíska andstæðinga öðruvísi en sem pólitíska andstæðinga. Þess vegna vilja þeir núna hnekkja ráðningunni. Páll er ekki þeirra maður. Og það sem verra er, hann var aðstoðarmaður ráðherra sem var ekki heldur þeirra maður. Þess vegna skiptir núna engu hversu ráðningin hafi verið „fagleg“, eða að „óháð nefnd“  hafi metið umsækjendur en ekki ráðherra. Stóryrðin og geðshræringin nú segja allt sem segja þarf um raunverulegt viðhorf vinstrimanna til opinberra embættisveitinga. Þar stjórnast þeir einfaldlega af pólitísku ofstæki, í hvaða búning sem það er klætt hverju sinni.
-greinin birtist í Morgunblaðinu fyrir helgi.
Það var merkilegt, þegar Guðmundur Steingrímsson gekk síðast úr Framsóknarflokknum, þá þótti ríkisstjórnarútvarpinu og vefmiðlum Samfylkingarinnar það mikil tíðindi, áfall fyrir Framsóknarflokkinn og sýna það hversu formaður hans væri „einangraður“.
Nú vissu menn auðvitað að Guðmundur hafði verið varaþingmaður Samfylkingarinnar og aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar áður en hann skaust óvænt í framboð fyrir framsóknarflokkinn, í kjördæmi föður síns og afa, og fékk þar þingsæti hratt og örugglega. En það er eins og menn hafi þrátt fyrir þetta ekki áttað sig á hversu mikill Samfylkingarmaður og lítill framsóknarmaður Guðmundur hefur alltaf verið. Það voru engin tíðindi þegar hann gekk úr Framsóknarflokknum, tíðindin voru ósvífnin sem hann sýndi þegar hann gekk í hann og lét eins og sér væri alvara. Þegar hann bauðst til þess að verða þingmaður framsóknarbænda í norðvesturkjördæmi en vildi fyrst og fremst koma Íslandi í Evrópusambandið og Degi B. Eggertssyni í stjórnarráðið.
Ekki löngu áður en Guðmundur gekk í Framsóknarflokkinn, og þáði þar þingsæti, söng hann eigin texta við þekkt dægurlag. Það segir töluverða sögu um barnaskap íslenskra fjölmiðlamanna, að þeir haldi að það hafi verið áfall fyrir forystu Framsóknarflokksins að losna við slíkan söngvara úr þingflokknum.
http://www.youtube.com/watch?v=qrtb7Ewuzdk
Á hverjum degi undanfarnar vikur berast fréttir af loftárásum sem gerðar eru á Líbíu, í nafni Atlantshafsbandalagsins, Nató. Fljótlega eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti að lýsa yfir loftbanni í landinu var tekið að ræða það á alþjóðavettvangi hvort Nató gæti tekið að sér að framfylgja því banni með valdi. Þetta kom ítrekað fram í fréttum, meðal annars hér á landi. Eftir nokkrar umræður var það samþykkt innan Nató. Eins og flestum er kunnugt er Ísland aðili að Nató. Eins og sömu flestum er kunnugt, hefur hvert einasta aðildarríki Nató neitunarvald innan sambandsins. Ísland hefði því getað hindrað allar hernaðaraðgerðir í nafni bandalagsins, en íslensk stjórnvöld kusu að gera það ekki. Íslenskir ráðamenn höfðu nægan tíma til að móta afstöðu landsins til þessa máls.
Ólíkt Íraksstríðinu
Fyrir tæpum áratug réðust Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Ástralía, Ítalía og ýmis fleiri lönd inn í Írak og losuðu landið undan ógnarstjórn Saddams Husseins. Sú innrás var ekki gerð í nafni Íslands og ekki í nafni nokkurs bandalags sem landið á aðild að. Íslensk stjórnvöld höfðu hins vegar á sínum tíma látið í ljós þá skoðun, að ef Saddam Hussein færi ekki að samþykktum Sameinuðu þjóðanna þá kynni að koma að því að hann yrði knúinn til þess með valdi. Sú skoðun gerði landið auðvitað ekki að aðila að innrásinni, þótt áróðursmenn hér á landi hafi auðvitað látið eins og Ísland væri ein fremsta innrásarþjóðin. Öðru máli gegnir í Líbíu, en Ísland á beina aðild að því bandalagi sem gerir nú á hverri nóttu loftárásir á landið, og hefur Ísland meira að segja neitunarvald innan bandalagsins.
Hvað með vinstrigræna?
Alþingi hefur enga samþykkt gert vegna loftárásanna á Líbíu. Utanríkismálanefnd þingsins mun ekki einu sinni hafa fjallað um málið áður en íslensk stjórnvöld afréðu að beita sér ekki gegn loftárásunum innan Nató. Vinstrigrænir eiga aðild að ríkisstjórninni en samt láta þeir eins og þeir beri enga ábyrgð á þeirri ákvörðun Íslands að beita sér ekki gegn loftárásunum á Líbíu. Forystumenn vinstrigrænna gefa þá skýringu að utanríkisráðherra fari með málefni Íslands og annarra ríkja. Það er stjórnskipulega rétt, svo langt sem það nær. En hvernig töluðu vinstrigrænir um Íraksstríðið, árum saman? Afstaða Íslands til Íraksstríðsins var mun veigaminni en afstaðan til loftárásanna nú, enda varð Ísland aldrei aðili að innrásinni. Engu að síður hafa vinstrigrænir í bráðum áratug talað um að „tveir menn“ hafi tekið allar ákvarðanir varðandi viðhorf Íslands til Íraksstríðsins. Í því tilfelli virðist vinstrigrænum ekki þykja neinu skipta að utanríkisráðherra fer einn með utanríkismál í ríkisstjórn Íslands.
Hvort velja vinstrigrænir nú?
Vinstrigrænir geta ekki bæði sleppt og haldið. Þeir verða nú að gera annað hvort: viðurkenna að þeir bera í raun ábyrgð á þeirri ákvörðun Íslands að mótmæla hvorki né hindra að Atlantshafsbandalagið, sem Ísland á aðild að, geri loftárásir á fullvalda ríki, eða þá að draga til baka margra ára samfelldar æsingaræður sínar um að tveir menn, utanríkisráðherra og forsætisráðherra, hafi ákveðið afstöðu Íslands til málefna Íraks.
Kokhreystin lifir þó
En kannski þarf ekki að velta svarinu fyrir sér. Hvað er yfirleitt að marka vinstrigræna? Í fjölmiðlamálinu snerust þeir á sveif með hagsmunum auðhrings gegn hagsmunum almennings. Í stjórnarandstöðu eftir bankagjaldþrot töluðu þeir gegn Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en eru nú hans helstu vinnumenn. Fyrir þingkosningar 2009 sögðust þeir vera allra manna harðastir í andstöðunni við Evrópusambandið. Tveimur mánuðum eftir kosningar voru þeir búnir að sækja um aðild. Til að greiða þeirri umsókn leið, börðu þeir Icesave þrívegis í gegnum alþingi. Í stjórnarandstöðu þóttust þeir heilagir í auðindamálum. Í ríkisstjórn horfðu þeir aðgerðalausir upp á Magma færa út kvíarnar. Í stjórnarandstöðu töluðu þeir sig hása um Íraksstríðið, þar sem Ísland var þó aldrei neinn aðili. Er þá ekki viðeigandi að þeir sitji nú í ríkisstjórn sem lætur sér í léttu rúmi liggja þótt bandalag, sem Ísland á aðild að, geri nú samfelldar loftárásir á Líbíu? Er ekki staðreyndin einfaldlega sú, að undir núverandi forystu er trúverðugleiki vinstrigrænna farinn veg allrar veraldar, þótt kokhreystin sé að vísu ósködduð enn?
Greinin birtist áður í Morgunblaðinu.
Hvernig getur verið óvissa um málið?  Það er augljóst að heimildin til greiðslu hlutabóta er runnin út og því engin óvissa um málið.
Lagaheimild ekki til staðar og því engar hlutabætur.  Enn eitt málið sem "gleymdist" á lokasprettinum hjá ríkisstjórninni.
Þetta dæmi úr malbikunargeiranum er því miður aðeins eitt af mörgum um þessar mundir.
Það er gömul saga og ný, að menn hugsa betur um eigin peninga en annarra og freistnivandinn er jafnt til staðar hjá félögum í opinberri eigu og þeim sem eru í dag í eigu banka, með einum eða öðrum hætti.  Fyrir starfmann í fyrirtæki þar sem eignarhaldið er fjarlægt, verður alltaf mikilvægara að bjóða í verk til að fá þau, heldur en að bjóða í verk til að hafa framlegð af þeim.
Í dag er staðan þannig að ótal fyrirtæki ganga fram með óforsvaranlegum hætti, hvort sem um ræðir opinber útboð eða "verðkannanir" einkaaðila.
Eina lausnin á þessu er að koma fyrirtækjum í hendur á eigendum sem tapa sínum eigin peningum með undirboðum og viðlíka háttarlagi.  Það þarf að gerast hratt!
Eins og segir í fréttinni:
Hún heldur áfram og bendir á að Írar, Grikkir og Portúgalar og aðrar Evrópuþjóðir hafi verið „þvingaðar til þess að ganga í ótakmarkaðar ábyrgðir allra lána sem stofnað var til af aðilum á markaði og þannig firrt bæði fjármálastofnanir og skuldabréfaeigendur allri ábyrgð... Það er í þessu samhengi sem þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave er bæði táknræn og mikilvæg fyrir Evrópu og heiminn allan“.
Þetta er einmitt staða sem verður að breytast hvað fjármálageirann varðar.
Frelsi verður að fylgja ábyrgð.
Alltaf, alls staðar!
Flestir hafa nú áttað sig á því, að engin lagaleg skylda hvílir á Íslendingum að samþykkja Icesave-kröfur Breta og Hollendinga. Fólk sér, að enginn bendir á neina lagareglu sem gæti gert íslenska skattgreiðendur ábyrga fyrir kröfunni. Auðvitað er það svo, að ef slík regla væri fyrir hendi, þá væri einfaldlega bent á hana og þar með væru önnur rök fyrir kröfunni óþörf. Þá væru Bretar og Hollendingar líka löngu farnir í mál, því enginn þarf að efast um að menn, sem beita okkur hryðjuverkalögum, myndu ekki hlífa okkur eitt andartak við dómsmáli, ef þeir teldu sig hafa minnstu von um að vinna það.
En þegar flestir sjá að lagaskyldan er engin þá reyna Evrópusinnar að halda því fram að Íslendingum beri siðferðileg skylda til að gangast í ábyrgð fyrir kröfunum. Þeir vita sem er, að meginþorri Íslendinga er gott og heiðvirt fólk sem er viðkvæmt fyrir að vera sagt fara illa með aðra. Þess vegna er nú í ákefð reynt að segja fólki, að okkur beri að samþykkja kröfurnar, því við séum „að mismuna útlendingum“.
Óþarfar áhyggjur
Menn mega ekki gleyma því, að Icesave-kröfur Breta og Hollendinga snúast um skuldir fallins einkabanka, sem ríkisstjórnir Breta og Hollendinga ákváðu upp á sitt eindæmi að borga, og þeir reyna nú að senda íslenskum skattgreiðendum reikninginn fyrir framtaki sínu – og heimta meira að segja ríkulega vexti til viðbótar. Íslendingar hafa alls ekki farið illa með Breta eða Hollendinga í málinu. Alþingi Íslendinga setti neyðarlög sem stórbættu hag Breta og Hollendinga og færðu þeim hundruð milljarða til viðbótar því sem þeir ella hefðu fengið. Menn þurfa því ekki að hafa áhyggjur af því að Íslendingum hafi farist illa við Breta og Hollendinga eða að við höfum í nokkru látið Breta gjalda hryðjuverkalaga og annarrar vinsemdar sem þeir hafa sýnt okkur.
Virtustu fjármálablöð heims styðja okkur
Enginn myndi lá því fólki, sem aðeins fylgist með Evrópusinnuðum íslenskum fjölmiðlum, þótt það tryði því að málstaður Íslands njóti einskis stuðnings erlendis. Svo er þó alls ekki. Má þar nefna að virtustu viðskiptablöð heims, Financial Times og Wall Street Journal, hafa í leiðurum lýst stuðningi við málstað Íslands. Sá stuðningur segir meira en mörg orð í mörgum greinum gætu sagt. Það er alveg augljóst, að ef Íslendingar væru í raun að brjóta á Bretum og Hollendingum, ef við værum að mismuna fólki, þá myndu virtustu viðskiptablöð heims ekki verja okkur í leiðurum sínum. „Verði lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni í apríl þýðir það að Ísland gæti orðið veðsett London og Haag í allt að 35 ár – vegna þess að bresk og hollensk yfirvöld ákváðu, að eigin frumkvæði, að leysa borgara sína úr snörunni“, skrifaði Wall Street Journal í leiðara á dögunum. „Bresk eða hollensk yfirvöld myndu aldrei taka á sig kröfur erlendra innistæðueigenda upp á þriðjung af landsframleiðslu ef einn af stóru bönkunum þeirra færi á hausinn“, skrifaði Financial Times. Við skulum hlusta á það sem þessi virtustu viðskiptablöð heims skrifa milljónum lesenda sinna. Við getum með góðri samvisku sagt nei á laugardaginn og borið höfuðuð hátt gagnvart hverjum sem er; Bretum, Hollendingum, sjálfum okkur og ekki síst komandi íslenskum kynslóðum.
Taktleysi Áfram-liða virðast engin takmörk sett.
Athyglisverðast er þó, hafandi í huga þann mikla áhuga sem fjölmiðlar sýndu því á sínum tíma, hver styrkti InDefence, að enginn ljósvakamiðlanna hafi minnst á þetta einu orði.
Það að bankarnir styrki Áfram-hópinn í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ábyrgðar á skuldum fallins banka er að líkindum enn taktlausara en hákarlaauglýsing þeirra JÁ-ara.
Þeir sem tala fyrir því, að Íslendingar segi já og takk við nýjasta Icesave-samningnum, þess efnis að íslenskur almenningur taki á sig skuldir fallins einkabanka, beita miklum fortölum. Fyrir ári höfðu þeir gert annan slíkan samning, og var hann ekki síður sagður nauðsynlegur og besta mögulega niðurstaða. Þegar forseti Íslands neitaði að staðfesta lög um þann glæsilega samning var því lýst sem einhverju mesta áfalli sem land og þjóð hefði orðið fyrir. Verst lét fréttastofa Ríkisútvarpsins, sem virtist telja efnahagsleg móðuharðindi óhjákvæmileg.
Nú benda sömu fuglar á sinn eigin fyrri samning, sem hafi í raun verið svo vondur að í því felist sérstök röksemd fyrir nýjasta samningnum. „Gamli samningurinn var miklu verri“, sagði hver já-maðurinn í kapp við annan, þegar alþingi afgreiddi málið í febrúar. „Það er himinn og haf á milli“, bættu þeir við, bæði þeir sem í tvö ár höfðu beitt ísköldu hagsmunamati til að gæta allra hagsmuna Breta og Hollendinga, sem og þeir sem  nú nýverið tóku upp sama hagsmunamat. Fljótlega mun þó hafa runnið upp fyrir þeim flestum, að sá samningur getur ekki verið góður, sem þarf samanburð við óskapnaðinn þeirra Steingríms, Svavars og Indriða til að sjást í jákvæðu ljósi.
Nú er komin fram ný röksemd. Nú er komin upp sú kenning að svo mikið fé muni fást fyrir eigur þrotabús Landsbankans að Íslendingar muni aldrei þurfa að borga nokkurn skapaðan hlut. Þeir bíræfnustu halda því jafnvel fram að íslendingar gætu komið út í plús! Þess vegna sé alveg óhætt að samþykkja kröfur Breta og Hollendinga. Af einhverjum ástæðum eru Íslendingar þó einu mennirnir í dæminu sem ætlað er að taka áhættuna af því hvað kemur fyrir eigur þrotabúsins í fyllingu tímans. Bretum og Hollendingum dettur það ekki í hug. Vonandi verða heimturnar ágætar. En það er bara ekki það aðalatriði sem margir halda. Þar skipta önnur atriði, eins og tímasetning á upphafi greiðslna úr búinu, ekki síður máli.
Strax þarf að borga 26 milljarða
Sumir virðast trúa því, að þrotabúið verði á endanum svo múrað að Íslendingar þurfi ekkert að greiða, jafnvel þótt þeir gangist undir Icesave-klafann. Þar held ég að óskhyggjan hafi tekið völdin. Það er til dæmis svo, að verði Icesave-samningurinn samþykktur þá þurfa Íslendingar þegar í stað að greiða Bretum og Hollendingum 26 milljarða króna, í erlendum gjaldeyri, í þegar áfallna vexti. Mun það koma til viðbótar þeim 20 milljörðum sem tryggingasjóðurinn mun þurfa að greiða á sama tíma. Og þessar upplýsingar koma frá sjálfu íslenska fjármálaráðuneytinu, sem seint verður sakað um að gera of mikið úr þeim álögum sem Icesave-samkomulagið myndi leggja á Íslendinga. Í svari ráðuneytisins til fjárlaganefndar alþingis, sem sent var þinginu í janúar síðastliðnum, segir orðrétt: „Gert er ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að leggja TIF (Tryggingasjóðnum) til 26,1 mia.kr (milljarða króna) á árinu 2011, þar af 9 mia.kr. vegna áranna 2009-2010 umfram þá 20 mia.kr. sem sjóðurinn getur sjálfur staðið undir“.
Hvar á að taka þá?
Menn hafa séð hvernig stjórnvöldum hefur gengið við niðurskurð á liðnum mánuðum. Flestar niðurskurðartillögur hafa verið dregnar til baka eftir hörð mótmæli. Skattar hafa verið hækkaðir svo mjög að vart verður lengra gengið. Á dögunum sagði forsætisráðherra að ekki væri til peningur til að minnka álögur á eldsneyti, þrátt fyrir mikla verðhækkun þess. Á sama tíma virðast stjórnvöld tilbúin til að borga 26 milljarða króna, í erlendum gjaldeyri, til Breta og Hollendinga, sem fyrstu vaxtagreiðslu ofan á ólögvarða kröfu þeirra.
Það hvílir engin lagaskylda á Íslendingum að greiða Icesave-kröfur Breta og Hollendinga. Það er vægast sagt ólíklegt að hlutlaus dómstóll muni dæma sjálfstætt ríki til að greiða kröfur sem hvergi í veröldinni eiga sér lagastoð. Virtir lögmenn hafa fært afar sterk rök fyrir því að áhættulítið sé að treysta á málstað Íslands fyrir hlutlausum dómstólum. Við þær aðstæður ættu kjósendur að hafa í huga, að „já“ í kosningunum 9. apríl kallar þegar í stað á 26 milljarða króna greiðslu til Breta og Hollendinga, auk alls sem á eftir fylgir. Þeir, sem ætla að samþykkja Icesave-ánauðina fyrir sína hönd, okkar allra og komandi kynslóða, ættu að minnsta kosti að láta svo lítið að upplýsa hvaðan þeir hyggjast taka peningana til að standa straum af rausnarskap sínum.
-þessi grein birtist í Morgunblaðinu 21. mars 2011.
Hér að neðan er grein eftir mig sem birtist í Morgunblaði dagsins:
Að „létta byrðarnar“
Eftir að forysta Sjálfstæðisflokksins og meirihluti þingflokks þar með, ákvað skyndilega að styðja Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar, gegn eindreginni ákvörðun eigin landsfundar en við mikla ánægju forystumanna stjórnarflokkanna, hefur farið í gang mikil áróðursherferð. Nú liggur skyndilega lífið við að sannfæra fólk um að í höndum sé glæsileg niðurstaða.
Það sem fyrst og fremst er sagt núverandi Icesave-samningi til ágætis er að hann sé „miklu betri en sá síðasti“. Það segir meira en mörg orð um ágæti núverandi samnings, að það þarf að bera hann saman við óskapnaðinn þeirra Svavars og Indriða til að sjá hann í jákvæðu ljósi. En þá blasa við augljósar spurningar: Hvað ef fyrri samningur hefði alls ekki verið gerður? Hvað ef núverandi samningur hefði verið gerður í fyrra? Þá gætu menn ekki rökstutt hann með því að hann væri skárri en sá síðasti. Hvaða rök hefðu menn þá fyrir honum? Hvers vegna er verið að miða við samning sem er úr sögunni og enginn maður vildi nema Steingrímur, Svavar og Indriði? Hvað ef menn hefðu allra fyrst gert samning sem hefði verið enn verri en „glæsilega niðurstaðan“ hans Svavars? Hefðu menn þá samþykkt Svavars-samninginn, af því hann hefði verið „miklu betri en sá síðasti“?
Þegar forysta og meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins kynnti stuðning sinn við núverandi Icesave-frumvarp fjármálaráðherra var því haldið fram að nýjasti samningurinn „létti byrðarnar“. Þá vakna spurningar. Hvaða byrðar? Það er engin ríkisábyrgð á skuldum Landsbankans. „Það er vandséð hvernig fjármálaráðherra getur komist að þeirri niðurstöðu að Ísland muni tapa dómsmáli þar sem fjallað væri um það hvort Icesave-reikningarnir séu á ábyrgð skattgreiðenda, þegar sjálf framkvæmdastjórn ESB hefur sýnt fram á að svo sé ekki“, sagði Bjarni Benediktsson réttilega í grein í Morgunblaðinu síðasta sumar. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins segjast taka undir með landsfundi hans um að kröfur Breta og Hollendinga séu löglausar. Það hvíla engar byrðar á okkur núna – enda þyrfti þá ekkert Icesavefrumvarp. Hvernig getur það „létt byrðarnar“ að leggja að ósekju á borna sem óborna Íslendinga tugi eða hundruð milljarða króna í erlendum gjaldeyri? Hvaða byrðar, sem á okkur hvíla, er verið að létta?
Þeir, sem nú þiggja ómælt hrós vinstriflokkanna fyrir að taka skyndilega þátt í að leggja skuldir einkabanka á íslensku þjóðina, geta þeir verið svo vinsamlegir að svara þessum spurningum?
-Greinin birtist í Morgunblaðinu í dag 15.febrúar 2011.
Enn virðist ríkisstjórnin ætla að þvinga Icesave í gegn á hlaupum.  Hafið er kapphlaup ríkisstjórnarinnar við undirskriftasöfnunina sem nú er í gangi á www.kjosum.is en leikplan forsætisráðherra virðist vera að keyra málið í gegnum þingið, áður en tími gefst til að safna undirskriftum.
Viðtökurnar sem www.kjosum.is undirskrifarsöfnunin fær nú, áður en henni er formlega hleypt af stokkunum, koma að líkindum þeim helst á óvart sem hlusta á Efstaleitismenn og ESB-aðildaráhugamenn á Fréttablaðinu/365, en síður þeim sem leggja sig fram við að hlera skoðun hins venjulega Íslendings, sem stritar daginn út og inn, til þess helst að borga Steinrími J. aukna skatta.
Það má hverjum sem leggur málið niður fyrir sig vera ljóst að fyrir utan það augljósa; það að þetta er ekki skuld íslenskra skattgreiðenda, heldur óbilgjörn krafa Breta og Hollendinga, þá eru áhættuatriðin sem einhverju skipta enn öll okkar megin í málinu.  Efnahagslegir fyrirvarar eru þannig úr garði gerðir að fari allt á versta veg, verður Jóel litli, sem kom til landsins frá Indlandi fyrir skömmu, jafngamall og sá sem þetta ritar þegar Icesave-sem þá verður orðin skuld- krafan verður að fullu uppgerð.
Það þarf æði frjótt ímyndunarafl til að sannfæra sig um að gjaldeyrishöftin hverfi á meðan Icesave klafinn hangir um háls íslenskra skattgreiðenda.  Gengisáhættan er öll okkar megin og fyrir þá sem ekki vita þá veiktist íslenska krónan um rúm 4% í janúar, ef mig misminnir ekki.  Óvissa virðist með flæði í erlendum gjaldeyri inn til nýja Landsbankans til að standa undir greiðslum af skuldabréfinu til gamla Landsbankans.  Það að ætla að kaupa gjaldeyri af Seðlabankanum til að brúa bilið hugnast þeim að líkindum ekki vel sem sjá fyrir sér styrkingarfasa íslensku krónunnar og afléttingu gjaldeyrishafta. Tímasetning á útgreiðslum úr þrotabúinu liggur ekki fyrir, sem er þó það atriði sem ræður mestu um vaxtagreiðslur ríkissjóðs.  Vaxtagreiðslur sem ríkissjóður fær aldrei til baka, sama hversu góðar heimtur verða úr búinu.  Heimtur úr búinu eru í raun það sem sá sem hér skrifar hefur minnstar áhyggjur af í augnablikinu, þó að það sé það atriði sem fær alla athygli í umræðunni. Þetta eru aðeins nokkur atriði af mörgum sem hægt er að nefna og varða áhættu sem hvílir á íslenska ríkissjóðnum verði Icesave III samþykkt eins og það liggur fyrir.
Áhættan er því enn allt of mikil og krafa almennings getur ekki verið önnur en sú að Alþingi leiti allra leiða til að breyta óvissu í vissu í þessu máli.  Rökin að fyrirliggjandi samningur sé svo miklu betri en hinir fyrri eru einfaldlega ekki boðleg ef þau eiga að duga til að hengja Icsave-kröfurnar um háls okkar skattgreiðenda.
Það eina sem gerir þennan samning bærilegan í hugum margra er það hvað hinir fyrri samningar voru ævintýralega vondir.  Slíkur samanburður er ekki boðlegur.
Að þessu sögðu vil ég fá að leggja áherslu á það augljósa:  www.kjosum.is skrifa undir núna!
Til upprifjunar er áhugavert að rifja upp frétt, frá 22.mars, þar sem haft er eftir viðskiptaráðherra að: ,,.. í ljósi þess að stór erlend lán ríkissjóðs séu ekki á gjalddaga fyrr en við lok næsta árs kunni að vera hagstæðara fyrir ríkissjóð að fresta lántökum næstu mánuði. Hann sagðist ekki geta fullyrt um lánsfjárþörf ríkisins á næstu árum en teikn séu á lofti að upphafleg tala hafi verið of há."
Hér er fréttin:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/22/hugsanlega_hagstaedara_ad_fresta_lantokum/
Nú kemur í ljós hvort viðskiptaráðherra man enn eftir Time Value of Money.
Það verður ljósara með hverjum deginum að Íslandsbanki var misnotaður í þágu eigenda sinna með þeim hætti að með ólíkindum er.  Misnotaður af eigendum sem allir, með einum eða öðrum hætti, tengjast Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Baugi, skilgetnu afkvæmi Samfylkingarinnar, sem haft hefur auðhringinn undir verndarvæng sínum allar götur síðan formaður Samfylkingarinnar hélt svokallaða Borgarnesræðu 9.febrúar 2003.
Sífellt kvak álitsgjafa og ,,sérfræðinga“ sem grafnir eru upp, þess efnis að einkavæðing bankanna hafi verið rót hrunsins, þar hafi allt verið gert með öfugum klónum og bankarnir færðir hinum verstu mönnum á silfurfati, verður hjákátlegt þegar í ljós er komið að sá banki sem stjórnmálamenn fengu aldrei að einkavæða, þar sem hann þurfti ekki að einkavæða, var misnotaður jafn illa og raunin er.
Í dag er grátbroslegt að rifja upp orð formanns Samfylkingarinnar úr Borgarnesræðunni, þar var reitt hátt til höggs og snúist til varnar fyrir auðhringinn.  Um leið og sú undarlega ræða er rifjuð upp er rétt að minna á merkilega grein sem Páll Vilhjálmsson, blaðamaður, skrifaði í mars 2003, þar sem hann greinir undirliggjandi markmið ræðunnar og segir:
„Ef tækist að telja almenningi trú um að Baugur væri í lögreglurannsókn vegna andúðar forsætisráðherra á fyrirtækinu þyrftu forsvarsmenn Baugs ekki að hafa áhyggjur af niðurstöðu lögregluyfirvalda og dómstóla. Sekt þýddi einfaldlega að forsætisráðherra væri búinn að ákveða að svo yrði en sýkna að jafnvel almáttugur Davíð Oddsson gæti ekki komið á kné svo grandvöru og heiðarlegu fyrirtæki sem Baugur er. Hér er meira í húfi en orðstír Davíðs Oddssonar. Ef atlaga Fréttablaðsins heppnast bíður hnekki tiltrú almennings á réttarríkinu. Kaupsýslumönnum á ekki að líðast að hafa stofnanir lýðveldisins og réttkjörin yfirvöld að leiksoppi.“
Í hvert sinn sem búist er við skýrslu og áliti rannsóknarnefndar Alþingis, fer í gang spuni í fjölmiðlum. Sá spuni er einfaldur: „Spuninn er byrjaður“, bergmála fjölmiðlamenn og ákafaálitsgjafar, og bæta því við að greinilegt sé að „áhrifamenn“ séu „byrjaðir að grafa undan rannsóknarnefndinni“. Þessi spuni hefur tvennan tilgang. Fjölmiðlamenn, ákafaálitsgjafar  og óðabloggarar vilja ráða opinberri umræðu á Íslandi sem mest. Þeir ætla sjálfum sér að ákveða hvað úr áliti nefndarinnar fái athygli. Þess vegna má ekkert verða til þess fyrirfram að draga úr trú manna á óskeikulleika nefndarmanna. Þess vegna er reynt að bregðast fyrirfram við því ef nefndin, vinna hennar eða niðurstöður, verða gagnrýnd. Það verður þá bara „spuni“ vondra manna. Á dögunum birti meira að segja fréttaþátturinn Spegillinn sérstakt ávarp fréttaritara Ríkisútvarpsins í Lundúnum þessa efnis, og bættist það í röð fleiri ávarpa þess fréttaritara til þjóðarinnar. Einn þáttastjórnandi Ríkisútvarpsins hefur mánuðum saman bloggað utan vinnutíma að niðurstöður nefndarinnar megi ekki verða „hvítþvottur“, og felst í því að þáttastjórnandinn hafi þegar ákveðið hvað rétt sé og rangt, og skuli nefndarmenn eiga hann á fæti ef þeir standi ekki undir kröfum hans. Skilaboðin eru skýr: Ef nefndarmenn áfellast þá sem þáttastjórnandinn hatast við, þá verða þeir lofsungnir fyrir „merkilegt verk“. Annars verða þeir úthrópaðir fyrir hvítþvott. Þegar slíkur söngur hefur verið sunginn mánuðum saman, bæði hjá þessum álitsgjafa og svipuðum, þá er spurning hversu sterk bein nefndarmanna eru, það er að segja þeirra tveggja sem ekki skýrðu frá því opinberlega í upphafi rannsóknar hverjar niðurstöðurnar yrðu, eins og einn nefndarmanna gerði og fréttamenn og álitsgjafar létu sér vel líka - eitt er þó ljóst, eftir opinber skrif þáttarstjórnandans um það hvernig skýrslan eigi að vera er ljóst að útilokað er að hann stýri umræðu um efni hennar á vegnum Ríkisútvarpsins.
„Áætluð“ skil
Af og til birtast fréttamenn og skýra frá því að birting skýrslu nefndarinnar muni enn dragast um svo og svo margar vikur. Er þá gjarnan nefnt í framhjáhlaupi að birtingin hafi verið „áætluð“ fyrsta febrúar. Það er villandi orðalag, sem þó hefur verið notað í mörgum fréttatímum. Birting skýrslunnar var ekkert „áætluð“ um það leyti. Í lögum um nefndina eru einfaldlega skýr fyrirmæli þess efnis að skýrslan skuli birt fyrir lok janúar 2010. Nefndarmenn sjálfir ákváðu hins vegar að fara ekki eftir þeim lagafyrirmælum, án þess að heyrst hafi að sú staðreynd hafi gefið þeim tilefni til að efast um eigið ágæti til að meta störf annarra. En þetta nefna álitsgjafarnir og fréttamennirnir sjaldan. Á þeim bæjum er heitt vonað eftir að nefndarmenn vegi að einhverjum þeirra sem álitsgjafarnir eru á móti, hafa jafnvel rægt árum saman, og meðan sú von lifir, má ekkert verða til þess að draga úr trúverðugleika nefndarmanna. En ef þeir bregðast vonunum, þá verður nú annað uppi á teningnum. Þá verður bloggað fram á nótt: Hvítþvottur, hvítþvottur!
Skyldu draumarnir rætast?
Ekki veit ég hvort draumar ákafra álitsgjafa rætast. Flestir venjulegir menn myndu auðvitað telja augljóst að gjaldþrot einkafyrirtækja væru á ábyrgð stjórnenda eða eigenda einkafyrirtækja en ekki ríkisins. En hvað veit maður. Einn nefndarmanna kenndi starfsmönnum eftirlitsstofnana opinberlega um bankahrunið um leið og hún settist í nefndina til að rannsaka orsakir bankahunsins. (Fréttamenn og álitsgjafar virtust ekki telja þetta valda vanhæfi hennar, og hefði verið gaman að velta fyrir sér hvort þeir hefðu verið sömu skoðunar ef hún hefði lýst gagnstæðum viðhorfum.) Hinir nefndarmennirnir tveir hafa svo sérhæft sig í að leita að mistökum stjórnsýslunnar. Kannski hefur hér fundist nefnd sem gæti látið drauma álitsgjafanna rætast, en því verður ekki trúað fyrirfram.
Á síðasta ári skrifaði þáverandi formaður Viðskiptaráðs merkilega blaðagrein. Þar sagði hann að skýrslunnar væri nú skammt að bíða og væri „mikilvægt að þeir aðilar sem gagnrýni hljóta taki hana til sín og nýti til uppbyggilegra umbóta. Þar gildir einu hvort gagnrýnin snúi að stjórnmálamönnum, embættismönnum, fjölmiðlum, hagsmunasamtökum atvinnulífs eða forystumönnum í viðskiptalífinu.“ Þetta voru óvænt en um leið ánægjuleg viðhorf úr viðskiptalífinu, þar sem álitum opinberra nefnda er yfirleitt mætt af fyllsta mætti og rannsakendum er yfirleitt mætt með lögfræðingaher. Kannski er þetta til marks um ný viðhorf í viðskiptalífinu. En kannski er þetta traust á nefndinni til marks um eitthvað annað.
-greinin birtist í Morgunblaðinu 3.apríl 2010.